veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég beini nú þessum orðum mínum til forseta þar sem núna áðan var ég að fylgjast með þessu viðtali við forsætisráðherra í Kastljósi og ég verð að segja að ég varð nokkuð dapur. Á svipuðum tíma og forsætisráðherra var að tala verulega niður til starfa okkar á þinginu, vægast sagt, og saka okkur um alls konar undarlega hluti voru þingflokksformenn, þar á meðal þingflokksformaður Samfylkingarinnar, eðlilega, að reyna að tala saman um það hvernig væri hægt að ná saman hér á þinginu. Á sama tíma er forsætisráðherra sem leiðir ríkisstjórnina og meiri hlutann í sjónvarpi allra landsmanna að grafa grafir til að hér sé hægt að vera í skítkasti endalaust og hæstv. forsætisráðherra gengur hvað lengst. (Forseti hringir.) Ég bið hæstv. forseta að íhuga þau orð sem hér hafa verið sögð um að koma því til forsætisráðherra að forsætisráðherra biðjist hreinlega afsökunar á þessum orðum.