156. löggjafarþing — 68. fundur,  24. júní 2025.

veiðigjald.

351. mál
[00:03]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég vil beina því til forseta, eins og svo sem aðrir hv. þingmenn sem hafa tekið hér til máls, að nú finnst mér vera mál að linni og það á við okkur um okkur öll. Við þurfum að hætta þessu, tölum með rökum. Mér finnst stjórnarandstaðan hafa dregið fram ákveðin rök í málinu. Við þekkjum það alveg, það er búinn að vera vandræðagangur með allar tölur og greiningar en það er grafalvarlegur hlutur þegar forsætisráðherra þjóðarinnar kemur fram og sakar okkur um að við séum að ganga erinda fjögurra til fimm fjölskyldna í landinu þegar við erum að tala um 917 útgerðir. Það eru 917 útgerðir sem um ræðir í þessu máli og við erum að tala fyrir þær allar, ekki bara fjórar til fimm risastórar útgerðir og það er langt því frá. (Forseti hringir.) Hér er lífsviðurværi fólks undir vítt og breitt um landið og við skulum bara tala um það af virðingu.