veiðigjald.
Frú forseti. Ég óskaði hér áðan eftir liðsinni forseta um að nálgast hæstv. forsætisráðherra vegna þessara ummæla sem hér eru til umræðu en ekki átti ég von á því þá að þurfa að koma aftur upp og fjölga um 100% í hópnum, því hér kemur í pontu hv. þm. Ásthildur Lóa Þórsdóttir og vænir okkur um svipaða hluti; ómálefnalegt, standi ekki steinn yfir steini eða eitthvað. Ég benti á það hér áðan, ég var að vona að hv. þingmaður hefði verið að hlusta á þá, að ég nálgaðist mína ræðu út frá umsögnum sveitarfélaga. Ég vona að hv. þm. Ásthildur Lóa Þórsdóttir meini það ekki þannig að það að ég hafi dregið það fram í ræðu minni og það fram í dagsljósið, að með því sé hún að gera lítið úr umsögnum þeirra sveitarstjórnarfulltrúa og sveitarstjóra sem taka þátt í að skrifa þessar umsagnir. Var það meining hv. þingmanns?