veiðigjald.
Virðulegi forseti. Í þessari ræðu ætla ég aðeins að koma inn á þau áhrif sem hugsanlega gætu orðið ef af þessu frumvarpi verður, þ.e. ef þetta nær í gegn. Umræðan hefur verið á þann veg að þetta hafi frekar lítil áhrif, jafnvel engin, en þegar við rýnum í tölur og veltum hlutunum fyrir okkur þá kemur upp önnur staða. Ef við förum á útgerðina þá liggur það alveg fyrir að ef þú hækkar álögur á útgerð þetta mikið þá kemur það svo sem beinast við í framhaldinu að þá verður lakari afkoma í greininni sjálfri. Hvað þýðir það þegar það verður lakari afkoma í greininni? Þetta hefur áhrif á allan reksturinn og eigendur, hverjir sem þeir eru nú, að útgerðinni, hvort sem hún er stór eða lítil, fara að leita leiða til að halda niðri kostnaði. Í því samhengi verður rekstraráhættan mun meiri og um leið og rekstraráhættan verður meiri þá leiðir það sömuleiðis til hærri fjármagnskostnaðar. Þetta eru þessi dómínóáhrif sem verða alltaf í hvert skipti sem afkomubati er í hættu, alveg sama hvaða atvinnugrein það er. Það skiptir ekki máli hvort við erum að ræða um sjávarútveg sem er að nýta auðlind þjóðarinnar eða einhvern annan rekstur. Lakari afkoma þýðir sömuleiðis að það verður minna fé í greininni. Væntanlega mun fjármagn þá hverfa frá greininni í kjölfarið. Síðast en ekki síst, ef við einföldum það sem snýr að útgerðinni þá leiðir lakari afkoma til þess að hún hefur minni getu til að borga góð laun og hvað gerist þá í framhaldinu? Það vill þannig til að árið 2024 greiddi sjávarútvegur 14 milljarða kr. í útsvarstekjur. Það eru þó töluverðir fjármunir. Síðan fáum við að heyra að þetta hafi bara engin áhrif á hag sveitarfélaga, ekki nokkur. 26 sveitarfélög standa sameiginlega að umsögn. Það er ekki tekið neitt tillit til þessarar umsagnar í nefndaráliti meiri hluta vegna þess að þetta hafi engin áhrif. En því miður er nú staðan önnur.
Virðulegi forseti. Ef þessir þættir hefðu ekki áhrif á rekstur sveitarfélaga væru sveitarfélög sennilega ekki að lýsa áhyggjum sínum. Það að sveitarfélög séu hér búin að senda inn umsagnir til atvinnuveganefndar og lýsa áhyggjum sínum eru ekki falsfréttir. Það eru ekki falsfréttir heldur, virðulegi forseti, þegar útgerðaraðilar, hjá minni og stórum útgerðum, lýsa sérstökum áhyggjum af afkomu sem fram undan er og við tökum það verulega alvarlega. Til dæmis fór ég yfir það í einhverri ræðu á dögunum varðandi afkomu sem snýr að Gunnvöru á Ísafirði. Ætli gjöldin séu ekki sirka að hækka þar með kolefnisgjaldinu um einhverjar 280 milljónir? Kolefnisgjaldið er 50 milljónir. Þetta hefur áhrif og við sjáum mjög víða annars staðar sömuleiðis að öll þessi hækkun kemur til með að hafa áhrif. Því er mjög mikilvægt, virðulegur forseti, að við förum varlega. — Ég sé að tími minn er á þrotum og ég óska eftir því að verða settur á mælendaskrá að nýju því að ég á eftir að fara yfir enn fleiri staðreyndatölur er að þessu koma.