156. löggjafarþing — 68. fundur,  24. júní 2025.

veiðigjald.

351. mál
[01:30]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegur forseti. Síðast þegar ég kom og ræddi um þetta mál var ég einmitt að reyna að fara yfir mismuninn á milli atvinnugreinanna af því að hér talar stjórnarmeirihlutinn alltaf eins og eigendur útgerðarfélaganna geti alveg borgað þetta. Þá er ég að fara yfir það að sjávarútvegurinn er af atvinnugreinunum með miðlungsafkomu. Það eru einhverjar atvinnugreinar fyrir neðan og fyrir ofan hann, á pari við sjávarútveginn eru t.d. bankarnir og fjármálafyrirtækin en fyrir ofan hann, með betri afkomu, eru byggingargeirinn og smávörumarkaðurinn.

Hvernig er sjávarútvegurinn að virka í íslensku samfélagi? Hann er að fjárfesta, hann er að skapa fullt af nýjum tækifærum með því að fjárfesta í nýsköpun og iðnaði. Hann er að halda í fiskvinnslurnar. Þótt fyrirtæki sameinist er hann ekkert að loka öðrum fiskvinnslum fyrr en nauðsyn krefur eða ekki verður öðru við komið. Á þessum tölum og þessum upplýsingum er ekki að sjá að hann sé með einhvern umframhagnað. Hann er frekar með minni hagnað, en það sem hann hefur kannski umfram eiginlega flestar þessar greinar er að hann er að fjárfesta svo mikið inn í greinina aftur til að búa til meiri verðmæti og meiri veltu og gera fjölbreyttara atvinnulíf hér og fjölbreyttar útflutningstekjur og stækka svolítið kökuna með fullvinnslu sjávarafurða, fara inn á nýja markaði og fullvinna afurðina og annað slíkt. Við erum alltaf að tala hérna um litlu og meðalstóru fyrirtækin, hvað það verður erfitt fyrir þau að bregðast við þessu, en sjávarútvegurinn á yfir 51% af öllum einkaleyfum í nýsköpun á Íslandi undanfarið þannig að það eru þannig minni aðilar, ekki í sjávarútvegi heldur í íslensku atvinnulífi, sem hafa áhyggjur af því ef stóru útgerðarfyrirtækin hafa minni fjárfestingargetu til þess að versla nýjan kæli, nýja flökunarvél, fjárfesta í því að gera einhver verðmæti úr aukaafurðum eins og roði eða úr innvolsinu eða hvað það er, þróa vörurnar áfram. Stærri fyrirtækin halda að sér höndum við það að endurnýja tæki, að vera að ráða iðnaðarmenn, rafvirkja, pípara, smiði, múrara og lengi hægt að telja til þess að viðhalda vinnslunum og stækka og þróa og bæta, halda að sér höndum og bíða og sjá hvert rekstrarumhverfið verður. Það er bara það sem allir í rekstri gera hvort sem þeir eru í sjávarútvegi eða öðru.

Eins og ég fór hérna yfir áðan er afkoman í sjávarútvegi ekkert meiri heldur en í mörgum öðrum atvinnugreinum, bara alls ekki. Af hverju eiga þeir þá ekki að bregðast við umhverfinu eins og allur annar atvinnurekstur gerir? Mega þeir sem eru að reka útgerðarfélögin ekki bregðast við? Eru þeir vondu karlarnir eða vonda fólkið ef þau bregðast við breyttum aðstæðum, auknum álögum, minni ávöxtun á eigin fé? Eru þau þá vondi aðilinn? En þegar það er samdráttur í byggingariðnaði og sagt upp í byggingargeiranum eða þegar er verið að sameina og hagræða í matvöruverslunum og starfsfólki matvöruverslana er sagt upp, er það ekki vonda fólkið? Er það eitthvað öðruvísi þegar sjávarútvegurinn bregst við þessu? Það eru svo margir svona aðilar sem eru kannski nýbúnir að stofna nýsköpunarfyrirtæki eða fá einhverja góða hugmynd eða eru að endurreisa rekstur eða annað slíkt, eru búnir að selja einhverju stóru útgerðarfélagi sem þarf núna að halda að sér höndum og framtíð þessa nýja fyrirtækis eða endurreisn fyrirtækis er bara mjög óljós, bara óljóst hvort hún gangi upp (Forseti hringir.) af því að fyrirtækin þurfa að bregðast við þeim aðstæðum sem stjórnvöld búa þeim og þeirri óvissu sem stjórnvöld búa þeim.