156. löggjafarþing — 68. fundur,  24. júní 2025.

veiðigjald.

351. mál
[01:36]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta atvinnuvn. (Bergþór Ólason) (M):

Herra forseti. Ég ætla í þessari ræðu minni að halda áfram að bregðast við nefndaráliti hv. meiri hluta atvinnuveganefndar. Ég vona að hæstv. forseti fyrirgefi mér að hafa örlítið hringlað til í röðinni í einni ræðu áðan til að ná utan um það samtal sem spannst í kjölfar útspils hæstv. forsætisráðherra í Kastljósi fyrr í kvöld en ég ætla hér næst að koma inn á þann kafla er tekur á umfjöllun nefndarinnar þar sem eðlilega er sagt frá því að nefndin hafi tekið á móti fjölmörgum gestum við umfjöllun málsins, enda málið umfangsmikið, eins og segir hér, og efni þess þjóðhagslega mikilvægt. Það er ágætt að hv. meiri hluti atvinnuveganefndar átti sig á því að málið sé þjóðhagslega mikilvægt af því að hér stendur upp úr öðrum hverjum stuðningsmanni málsins að þetta hafi ekki áhrif á neinn. Þetta hefur ekki áhrif á sveitarfélögin. Þetta hefur ekki áhrif á nýsköpunarfyrirtækin. Þetta hefur ekki áhrif á starfsfólk þessara fyrirtækja. Þetta hefur ekki áhrif á fyrirtækin sjálf sem verða undirorpin þessum miklu skattahækkunum af því að það er komin fram einhver ný hagfræðikenning, sem reyndar hefur ekki verið kennd í skólum að því er virðist, varðandi auðlindarentu sem ég bíð spenntur eftir að heyra hvaðan hæstv. forsætisráðherra og hæstv. atvinnuvegaráðherra hafa, því að það er ekkert sem grundar það í þeim ræðum sem fluttar hafa verið eða í gögnum málsins, hvorki frumvarpinu né nefndaráliti meiri hluta atvinnuveganefndar. En hér er því haldið fram áfram að nefndin hafi hlustað af gaumgæfni á málefnaleg sjónarmið. Ég hef nú upplifað að það sé kannski frekar þannig að málefnaleg sjónarmið hrökkvi eins og vatn af gæs af fulltrúum stjórnarflokkanna en hver sér með sínum augum silfrið. Ég man í fljótu bragði ekki eftir svona máli sem er jafn mikið að umfangi og þetta þar sem hafa virst vera jafn lítil móttökuskilyrði, jafn lítil hlustunarskilyrði fyrir raunverulegum sjónarmiðum, vel rökstuddum. Það var vissulega átt við frítekjumarkið svokallaða á milli þess sem málið var lagt fram í samráðsgátt og þess þegar það var lagt fram hér í þinginu en það var svona bitamunur en ekki fjár, því miður. Það er skemmst frá því að segja að harmakvein þeirra sem tala fyrir minnstu útgerðirnar sem fyrir gjaldinu verða voru engu minni og raunar meiri heldur en þeirra sem mæltu fyrir millistóru og stærri útgerðirnar.

En hér er síðan áfram sagt í þessum kafla um umfjöllun nefndarinnar að kallað hafi verið eftir breytingum á greinum frumvarpsins, þ.e. í umsögnum og gestakomum. Þá spyr maður: Bíddu, hverjar voru þær breytingar þegar á reyndi? Þær voru að mér sýnist fyrst og fremst breytingar sem voru til komnar vegna athugasemda Skattsins þegar loksins var reiknað eins bærilega í námunda við rétt og nokkur kostur var, þrátt fyrir að eins og ég fór yfir í síðustu ræðu minni hafi verið vikið frá þeim forsendum sem frumvarpið sjálft stillti upp gagnvart þeim verðum sem líta átti til við mat á málinu. Þeir útreikningar Skattsins eru til komnir að kröfu minni hluta nefndarinnar. Það tók töluverðan tíma að fá það í gegn að þeir útreikningar yrðu framkvæmdir. Ég kann Skattinum bara miklar þakkir fyrir að taka vel í það verkefni þegar haft var samband við stofnunina. Skatturinn er í rauninni sá aðili sem er í bestum færum til að reikna áhrif frumvarpsins eins og það liggur fyrir og það var gengið til þess verks en einhverra hluta vegna var farið að ósk atvinnuvegaráðuneytisins, eins og kemur fram í gögnum, að notast við önnur viðmiðunarverð heldur en ráðuneytið sjálft hafði rammað inn í töflu 8 í frumvarpinu. (Forseti hringir.) Það hefur ekki verið útskýrt og enginn reki gerður að því að útskýra það í þessu nefndaráliti hv. meiri hluta atvinnuveganefndar.

Virðulegur forseti. Ég er að mjakast í gegnum þetta og ég vil óska eftir að verða settur á mælendaskrá aftur.