156. löggjafarþing — 69. fundur,  24. júní 2025.

orð forsætisráðherra um stjórnarandstöðuþingmenn.

[10:03]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Frú forseti. Það er rétt að upplýsa það að hv. atvinnuveganefnd bárust upplýsingar um samskipti atvinnuvegaráðuneytisins og annarra aðila og þá vinnu sem hefur farið fram í tengslum við þetta frumvarp og þar kemur nú fram skýrt sem öllum mátti vera ljóst að það er búið að vinna þetta mál mjög vel. Það er búið að hafa náin samskipti við aðila, við Skattinn og fjölmarga marga aðila, SFS, í samfélaginu. Þær ræður sem hafa verið fluttar hér úr þessum ræðustól undanfarna sólarhringa hafa verið með þeim hætti að hér hafa jafnvel verið ástundaðar blekkingar. Hér hefur ekkert verið greint, hér hafa ekki verið nein samskipti. Hvað eru það annað en falsfréttir, frú forseti? Auðvitað er þetta sannleikurinn í málinu. Þessi málflutningur sem stjórnarandstaðan hefur ástundað hér er verulega billegur og er henni svo sannarlega til skammar.