156. löggjafarþing — 69. fundur,  24. júní 2025.

orð forsætisráðherra um stjórnarandstöðuþingmenn.

[10:04]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Það er rétt að við í atvinnuveganefnd fengum minnisblaðið fyrir rétt tæpum klukkutíma síðan, þannig að auðvitað höfum við ekki komist yfir að kynna okkur plaggið. Það er ánægjulegt að sjá hvað formaður atvinnunefndar virðist vera ótrúlega vel lesinn í málinu og ég reikna því með að hann hafi fengið gögnin mun fyrr en við til að fara yfir. Þetta er töluvert efni til að átta sig á og það gerist ekki á 45 eða 50 mínútum.

Ég vil síðan mótmæla harðlega þeim ummælum sem féllu af hálfu forsætisráðherra í gær í Kastljósi um þar sem var svona gefið í skyn og sent til minni hluta atvinnuveganefndar að hér værum við að vinna í einhverjum falsfréttastíl og aðrir sem taka þátt í þessari umræðu. Í falsfréttastíl. (Gripið fram í.) Þetta minnir mig svolítið á (Gripið fram í.) hvað við erum að fjalla um. Takk fyrir þetta, herra formaður atvinnuveganefndar, Sigurjón Þórðarson. Þetta er það sem búið er að fjalla um í NATO-þinginu árum saman og hefur verið varað við, við falsfréttum. Að halda að þetta séu falsfréttir — hér eru bara lýðræðiskjörnir fulltrúar í atvinnuveganefnd að reyna að sinna sínum störfum. Þetta rugl (Forseti hringir.) í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt og krefst afsökunarbeiðni (Forseti hringir.) og þess að ummælin séu dregin til baka strax.