156. löggjafarþing — 69. fundur,  24. júní 2025.

orð forsætisráðherra um stjórnarandstöðuþingmenn.

[10:06]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Frú forseti. Þessi staða sem upp er komin hér er okkur ekki til mikils sóma. Það er afar erfitt þegar við þingflokksformenn erum að setjast við samningaborðið og erum að reyna að ná einhvers konar samningum varðandi þinglok að fá þær fréttir að forsætisráðherra sé í viðtali og tali um falsflutning í þingsal. Þetta eru alvarlegar ásakanir, mjög alvarlegar, og hér kemur formaður atvinnuveganefndar og fylgir því eftir. Mér þykir þetta til skammar og ekki á það bætandi hvernig ástandið er í þinginu. Maður upphefur sjálfan sig ekkert á því að gagnrýna aðra. Hér erum við að koma upp og ræða umsagnir sveitarfélaga, sveitarfélaga um landið sem fengu óháðan aðila til að taka saman gögn. Hér er verið að draga það í efa. Ég veit ekki hvort hv. formaður atvinnuveganefndar eða hæstv. forsætisráðherra átti sig á því hversu þungar ásakanir þetta eru. (Forseti hringir.) Ég tek undir með fyrri ræðumönnum hér: Það væri bragur á því að hæstv. forsætisráðherra drægi ummæli sín til baka.