156. löggjafarþing — 69. fundur,  24. júní 2025.

orð forsætisráðherra um stjórnarandstöðuþingmenn.

[10:07]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég vil taka undir það sem hér kemur fram, okkur brá í brún sem vorum í þingstörfum í gærkvöldi þegar fréttir bárust af þessum ummælum hæstv. forsætisráðherra. Það hafði reyndar fyrr um daginn verið talað á svipuðum nótum hjá fulltrúum stjórnarliða, það var verið að saka þá sem voru að ræða málið á Alþingi sérstaklega um að vera að hræða fólkið á landsbyggðinni, eins og það var kallað. Mér er til efs að fólkið á landsbyggðinni, þessi hundruð manna sem komu á fund á Vestfjörðum og annars staðar, allar þessar umsagnir fyrirtækja, einstaklinga og sveitarfélaga, samfélaganna allra, taki undir þetta. Mér finnst það vanvirðing við alla þá sem hafa komið fram og lýst yfir áhyggjum. Þess vegna eru þessi ummæli sérstaklega ósæmandi hæstv. forsætisráðherra, að (Forseti hringir.) saka stjórnarandstæðinga um falsfréttir og að vera að ala á ótta fólks með því að vera að ræða þetta mikilvæga mál.