orð forsætisráðherra um stjórnarandstöðuþingmenn.
Frú forseti. Stundum er spennustigið í þessu húsi mjög hátt, við vitum það öll. Við vitum það líka öll að allar upplifanir sem eru inni í okkur þegar orð falla eru raunverulegar, þannig að mig langaði svolítið að halda því hér til haga að hér hefur stjórnarmeirihlutanum og fullt af fólki sem er að vinna heiðarlega úti í sal og er ekki í pólitík sárnað eitt og annað sem hefur verið sagt hér við meðferð þessa máls í þingsal, stór og þung orð látin falla um blekkingar, að halda eftir gögnum og alls konar svona hluti. Það er ekkert alltaf gott að sitja undir því. Ég tek undir það sem hv. þingflokksformaður Framsóknar nefndi hérna, Ingibjörg Isaksen. Nú eru þingflokksformenn farnir af stað í það að reyna að semja um þinglokin. Ég ætla auðvitað ekki að gefa hér einhver fyrirmæli almennt úti í sal enda svo sannarlega ekki mitt verk. En ég held að það gæti verið ágætt að við öll, þetta er bara mín skoðun, myndum aðeins anda í kviðinn og athuga hvort við getum náð saman um þinglok þannig að sómi sé að.