156. löggjafarþing — 69. fundur,  24. júní 2025.

orð forsætisráðherra um stjórnarandstöðuþingmenn.

[10:13]
Horfa

Ragnar Þór Ingólfsson (Flf):

Frú forseti. Þau orð sem voru látin falla í sjónvarpsþætti í gær af hálfu forsætisráðherra voru þess eðlis að málflutningur stjórnarandstöðunnar bæri merki um falsfréttastíl, ef svo mætti að orði komast, málflutningur stjórnarandstöðunnar bæri merki um það, við gætum kallað það blekkingar. En enn og aftur kem ég hér upp eftir að hafa hlustað á málflutning stjórnarandstöðunnar sem heldur því fram að bæði stjórnarliðar og ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafi með frumvörpum sínum og tillögum stundað skemmdarverk, ofbeldi, lögbrot, stjórnarskrárbrot, blekkingar með beinum hætti — og þið ætlið að fara á límingunum yfir því að það sé vísað í þetta tiltekna orð. Ég á bara ekki til orð.