orð forsætisráðherra um stjórnarandstöðuþingmenn.
Virðulegi forseti. Stundum er gott fyrir okkur að stíga aðeins út fyrir þetta hús, sem ég gerði einmitt áðan bara á milli funda. Ég fór út og fékk mér kaffi og þá hitti ég vinkonu mína, hana Steinunni, sem spurði af hverju í ósköpunum við værum ekki búin að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem hefur legið fyrir þinginu lengi. Spurning sem ég gat í raun og veru ekki svarað með neinu öðru en því að það hefði bara ekki komist á dagskrá. Það er ekki boðlegt að mannréttindi fólks bíði á meðan við sitjum hér og höngum í einhverjum orðhengilshætti og rífumst. Því vil ég skora á forseta að setja þetta mál á dagskrá sem fyrst svo við getum loksins lögfest sjálfsögð mannréttindi fatlaðs fólks á Íslandi.