orð forsætisráðherra um stjórnarandstöðuþingmenn.
Virðulegur forseti. Ég heyri að Kastljóssviðtal gærkvöldsins sló minni hlutann illa. Þar var talað um að hér væri málflutningur sem væri í falsfréttastíl þar sem væri í rauninni verið að — hvað þýðir það? Þýðir það að það sé verið að fara ónákvæmlega með staðreyndir, að þær séu settar fram á þann hátt að þær eigi að skapa einhvers konar glundroða eða óróa eða ótta í samfélaginu? Það má velta þessu upp. Það var áhugavert eftir þetta, og það var nú tekin syrpa í fundarstjórn í gær þar sem var mikið talað um það að hér væri bara farið með staðreyndir og hér væri ekkert verið að reyna að hræða neitt eða teygja og toga. En í næstu ræðu var því haldið fram að líklegast væru formaður og forsætisráðherra vor með hagfræðigráðu frá Sovétríkjunum og að þetta væri nú ríkisstjórn frá kommúnistafélögunum, kommúnistalöndunum.
Virðulegi forseti. Slíkur málflutningur dæmir sig sjálfur. Ef fólk ætlar að vera móðgað yfir því að bent sé á að fólk sé að fara frjálslega með staðreyndir þegar þetta er málflutningurinn í næstu ræðu (Forseti hringir.) frá hv. varaformanni Sjálfstæðisflokksins, koma síðan hérna upp og láta eins og hér sé bara (Forseti hringir.) farið með staðreyndir og bara verið að tala um efni máls, það dæmir sig sjálft.