orð forsætisráðherra um stjórnarandstöðuþingmenn.
Virðulegur forseti. Ég ætla að hvetja hæstv. forseta til að fara ekki að gera undanþágur á almennum viðmiðum um klæðnað, sem ég veit reyndar ekki hvort séu formleg.
En það eru almennt miklar umræður um þetta viðtal í Kastljósinu í gær og ég hef ekki verið í gegnum tíðina neitt sérstaklega viðkvæmur fyrir falsfréttahugtakinu ef það er rétt notað, en mér fannst það ekki rétt notað þarna í gær. Það er ekki þannig að maður sjálfur alla vega hafi verið með einhverjar falsfréttir í þessum málum. Við erum bara búnir að ræða hérna marga anga þessa máls, m.a. hvert peningarnir fara, hvar þeir eiga að vera. Mér fannst áhugavert að hæstv. forsætisráðherra, hagfræðingurinn, hefði ekki aðeins víðari skilning t.d. á því að ímynda sér að það væri hægt að klípa með svona mikilli nákvæmni bara út úr arðgreiðslum fyrirtækja þegar skattlagning færi fram þegar það er auðvitað miklu flóknari mynd í veruleikanum hvaðan síðan þeir peningar eru teknir. Þannig að það er margt efnislegt í þessu Kastljóssviðtali margumrædda líka sem mætti fara út í. (Forseti hringir.) — Ég þarf að koma hérna aftur greinilega.
(Forseti (ÞSv): Forseti minnir hv. þingmenn á að þessi liður heitir fundarstjórn forseta.)