orð forsætisráðherra um stjórnarandstöðuþingmenn.
Frú forseti. Mig langar að taka undir orð hv. þingflokksformanns Sigmars Guðmundssonar um að anda í kviðinn. Það er algjörlega rétt að hér eru látin orð falla sem í besta falli geta stundum verið talin tæp og yfirlýsingar og þegar sumir hv. þingmenn vilja saka aðra um að tala óvarlega þá gera þeir það síðan sjálfir í sömu andrá. En ég vil bara benda hv. þingflokksformönnum á og hæstv. ráðherrum á að eftir höfðinu dansa limirnir og hér eru það ekki óbreyttir hv. þingmenn sem eru að tala óvarlega. Það eru hv. formenn nefnda, það eru hæstv. ráðherrar sem eru að tala á þessa vegu og það er mjög alvarlegt. Því vil ég bara biðla til hæstv. forseta að taka þessa umræðu við hv. þingflokksformenn, hæstv. ráðherra, að eftir höfðinu dansa limirnir. Ef við ætlum aðeins að minnka, hvað á maður að segja, þá togstreitu sem er að eiga sér stað í þessum þingsal þá byrjar það á toppnum.