156. löggjafarþing — 69. fundur,  24. júní 2025.

orð forsætisráðherra um stjórnarandstöðuþingmenn.

[10:26]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Það sem við höfum verið að ræða og við höfum tekið fyrir á undanförnum vikum og mánuðum í þessu máli eru gögn og greiningar, að það hafi verið afar illa staðið að þeim. Þetta er illa unnið mál frá grunni. Það er búið að vera gríðarleg vinna að ná utan um þetta mál í atvinnuveganefnd og að mörgu leyti bara þakkarvert að framsögumaður málsins, Eiríkur Björn Björgvinsson, hafi tekið því vel að reyna að leiða málið áfram og gögnin. Við erum bara síðan — það kemur fram í þessum gögnum að það eru ekki nema tíu dagar, eitthvað svoleiðis, sem er verið að leiðrétta gögn sem hafa mikið að segja í þessu máli, tíu dagar. Það kemur bara fram í gögnunum. Þannig að við erum auðvitað að kynna okkur þetta betur.

Ég verð síðan aðeins að segja það að nú erum við bæði búin að fá frá hv. þm. Jóni Gnarr, (Gripið fram í.) sprellikalli dagsins, hann er búinn að tjá sig í dag, en þegar það hljómar hérna inni í þingsal frá (Forseti hringir.) hv. formanni atvinnuveganefndar að þetta sé klikkað lið — þetta er klikkað lið, það er það sem heyrist inni í þingsal — (Forseti hringir.) þá held ég að við séum bara komin á þann slæma stað að það þurfi aðeins að fara að kæla niður hérna (Forseti hringir.) og stoppa, gefa þessu nokkrar klukkustundir. Vegna þess að þessi framkoma, (Forseti hringir.) þessi framkoma hjá hv. þingmanni, formanni atvinnuveganefndar, er gjörsamlega óþolandi (Forseti hringir.) í öllum samskiptum.

(Forseti (ÞSv): Eins og hv. þingmönnum er kunnugt um þá er ræðutími í fundarstjórnarliðnum ein mínúta, ekki ein og hálf mínúta, og ég bið hv. þingmenn að virða þingsköpin í landinu. Þau eru lög í landinu.)