156. löggjafarþing — 69. fundur,  24. júní 2025.

orð forsætisráðherra um stjórnarandstöðuþingmenn.

[10:30]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Frú forseti. Ég verð að viðurkenna að ég er undrandi á viðbrögðum hv. stjórnarliða sem koma hér upp og smætta þær athugasemdir og þá umræðu sem við erum hér réttilega að halda á lofti. Við skulum muna að hæstv. forsætisráðherra situr í skjóli þingsins og ummæli hennar um falsfréttastíl stjórnarandstöðu eru alvarleg. Þau eru tekin alvarlega og það er okkar hlutverk að búa svo um hnúta að svona ummæli séu ekki sjálfsagður partur af okkar lýðræðislegu umræðu hér — að sjálfsögðu.

Svo vil ég nú fá að svara, ljúft og skylt sem þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, og verja varaformann Sjálfstæðisflokksins þar sem hv. þingflokksformaður Samfylkingarinnar kemur hér upp og notar sem rök um að við séum víst að halda uppi einhvers konar falsfréttastílsumræðu. Ég ætla bara að leyfa mér að lesa orðrétt hvað varaformaður Sjálfstæðisflokksins sagði í gærkvöldi, með leyfi forseta:

„Ef ég vissi ekki betur myndi ég halda (Forseti hringir.) að hér talaði hagfræðingur sem væri annaðhvort menntaður í Sovétríkjunum eða Austur-Þýskalandi.“

Ef ég vissi ekki betur. Eru þetta rökin fyrir því (Forseti hringir.) að stjórnarandstaðan sé hér að ræða í falsfréttastíl? Er þetta réttlætingin? Kannski að athuga eigin staðreyndir áður en maður fer að hrekja annarra?