orð forsætisráðherra um stjórnarandstöðuþingmenn.
Frú forseti. Hér er mikið talað um gögn og greiningar og skort á þeim. Ég verð bara að segja það að allt frá því að málið kom hingað inn í þingsal í 1. umræðu þá höfum við í atvinnuveganefnd vandað vel til verka. Það hafa aldrei verið gerðar jafn yfirgripsmiklar greiningar á eiginlega neinu máli, held ég, þegar það er skoðað nánast inn á hvert einasta fyrirtæki hver áhrifin verða. Svo byrja menn hér að þæfa um tölur og réttar tölur og ég er búin að heyra það núna í einhverja tvo, þrjá daga að nýjustu gögnin frá Deloitte sýni það svart á hvítu að þetta sé svona og svona. Ég vil bara upplýsa þingheim um það að meiri hlutinn hefur aldrei séð þessar greiningar frá Deloitte, nýjustu greiningar og nýjustu gögn frá Deloitte, vegna þess að við fáum greinilega ekki sömu upplýsingar og minni hlutinn. Þetta eru rangar tölur. Við skulum nota réttar tölur.