orð forsætisráðherra um stjórnarandstöðuþingmenn.
Virðulegi forseti. Sú orðræða sem viðhöfð var í Kastljósi í gærkvöldi af hálfu hæstv. forsætisráðherra Kristrúnar Frostadóttur var ekki til þess fallin að skapa sátt um störf þingsins, því miður. Það var afskaplega dapurt að verða vitni að því og heyra það hvernig hæstv. forsætisráðherra lítur á stjórnarandstöðuna, lítur á störf þingsins og hvernig þingið starfar. Forsætisráðherra kaus í gær að gera lítið úr stjórnarandstöðunni og öllum þeim fjölda sem hefur gert athugasemdir við það mál um breytingar á veiðigjöldum sem hér hefur verið til umræðu. Hér var talað um falsfréttir, glundroða, að skapa ótta, í bara eðlilegri lýðræðislegri umræðu. Það er það (Forseti hringir.) sem við Sjálfstæðismenn erum að gera hér. Við erum ekki að gera neitt annað en að verja lýðræðið í þessu landi.