orð forsætisráðherra um stjórnarandstöðuþingmenn.
Virðulegur forseti. Við í minni hlutanum erum að koma hér upp til að benda á mikilvæga hluti. Ég sagði áðan að það falla alls konar orð hér og við getum tekist á en það er öðruvísi þegar hæstv. forsætisráðherra mætir í viðtal með svona yfirlýsingar og sleggjudóma. Hæstv. forsætisráðherra hefur nær eingöngu á þessu þingi svarað hér óundirbúnum fyrirspurnum. Hæstv. forsætisráðherra hefur ekkert komið hér og átt samtal við stjórnarandstöðuna. En þegar við deilum hér um tölur og vinnu við þetta mál þá fagna ég því sem hv. þm. María Rut Kristinsdóttir sagði hér áðan. Kannski getum við sameinast um það hvað á að greiða per kíló. En því miður er það enn þá þannig að við fáum þá útreikninga að það þýði 14 milljörðum meira, 14 milljarða kr. hækkun. Þá skulum við bara að sýna fram á það, því að ég er bara með tvo útreikninga og þetta er það, virðulegur forseti, sem við erum að benda á. (Forseti hringir.) Það er ómögulegt að standa hér í 2. umræðu um svona mikilvægt þingmál og gögnin greinir á. (Forseti hringir.) Já, og fólk hristir hér hausinn. Ég hristi líka hausinn. Hvað á ég að gera, (Forseti hringir.) hæstv. forseti?