orð forsætisráðherra um stjórnarandstöðuþingmenn.
Virðulegur forseti. Ég ætla að koma hingað upp og ítreka það að umrædd gögn sem voru rædd hérna fyrst í morgun voru send nefndinni í morgun. Það var enginn annar í nefndinni búinn að sjá þau. Þessi gögn sýna að við erum að tala um réttar tölur og það stendur í nefndarálitinu. Einnig vil ég taka undir orð hv. þm. Maríu Rutar Kristjánsdóttur að það er búið að ræða síðustu daga um greiningar sem við í meiri hluta hv. atvinnuveganefndar höfum ekki séð. Það væri áhugavert að vita, frú forseti, hver stendur fyrir þeim greiningum því að ekki veit meiri hluti hv. atvinnuveganefndar hverjir það eru.