orð forsætisráðherra um stjórnarandstöðuþingmenn.
Frú forseti. Það er merki um sjálfstraust að geta tekið aftur orð sín og beðist afsökunar. Það er alla vega mitt mat. Hér í ræðu fyrir þó nokkru síðan hélt ég því fram að hæstv. atvinnuvegaráðherra hefði talað um að hin meinta leiðrétting væri einungis fyrsta skrefið í frekari skattlagningu á greinina og réttilega brást hæstv. atvinnuvegaráðherra illa við því því að þar hafði ég ráðherrann fyrir rangri sök. Þetta var forsætisráðherra sem hafði látið þessi orð falla en ekki atvinnuvegaráðherra. Þá var ekkert erfitt að koma hingað í pontu og biðjast afsökunar á því að hafa látið orð falla sem ekki voru rétt. Maður getur ekkert annað gert ef manni hefur orðið á. En þá þarf maður líka að biðjast afsökunar. Og því meira sjálfstraust sem menn hafa, því líklegri eru þeir til að geta beðist afsökunar. Það væri þinginu mikill sómi að því ef hæstv. forsætisráðherra (Forseti hringir.) myndi koma hingað í pontu og biðjast afsökunar á þessu gönuhlaupi sínu.