156. löggjafarþing — 69. fundur,  24. júní 2025.

orð forsætisráðherra um stjórnarandstöðuþingmenn.

[10:41]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf):

Virðulegur forseti. Ég heyri áfram að þetta Kastljóssviðtal hefur strokið stjórnarandstöðunni eitthvað illa. Ég hvet fólk bara til að horfa á viðtalið og leggja sinn dóm á það. Það væri nú efnilegt fyrir umræðuna, sérstaklega þegar við erum að reyna að varpa ljósi á að hér sé enginn málflutningur í falsfréttastíl, að t.d. fulltrúar stjórnarandstöðunnar myndu koma hér upp, eftir að hafa fengið núna minnisblaðið, eftir yfirlýsingu frá ráðuneytinu og þeim stofnunum sem reikna út veiðigjaldið, og sammælast um að sú upphæð sem kemur fram í nefndaráliti sé rétt. Nei, hv. þingmenn koma enn þá upp og tala um að hér berist — hv. varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins sagði í gær að það bærust daglega ný gögn, nú síðast frá Deloitte, gögn sem eru unnin fyrir hagsmunaaðila úti í bæ en eru með sterkum fyrirvara um það — Deloitte þykir nú ekki setja mikinn fyrirvara, að það séu dregnar miklar ályktanir af þessum gögnum þar sem þau voru unnin í flýti og ekki gafst mikill tími til að fara yfir hugsanlega alla þætti sem snúa að málinu. Þetta eru fyrirvararnir í þessari greiningu Deloitte sem er nú oft verið að vísa til. Hér liggur fyrir (Forseti hringir.) að þeir aðilar sem reikna út veiðigjald eru búnir að lýsa því yfir með minnisblaði, í yfirlýsingu, og verjast ásökunum um blekkingaleiki frá minni hlutanum, (Forseti hringir.) en enn þá er komið upp í pontu og talað um að þetta séu ekki rétt gögn. Ef við viljum halda áfram að tala um staðreyndir þá hvet ég hv. þingmenn til að koma þá og viðurkenna hvað er rétt í málinu.

(Forseti (ÞSv): Forseti minnir hv. þingmenn enn og aftur á ræðutímann í þessum lið, fundarstjórn forseta. Hann er ein mínúta.)