orð forsætisráðherra um stjórnarandstöðuþingmenn.
Frú forseti. Ég fór hér yfir í fyrra skipti mínu um fundarstjórn þau fjölmörgu alvarleg orð sem þingmenn hafa beint að stjórnarmeirihlutanum og þá ríkisstjórn og ráðherrum, ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur, forsætisráðherra sjálfum, hún hlýtur að taka þá orðræðu beint til sín í ljósi þess að í einhverjum af þessum þúsund ræðum, ég hef ekki hlustað á þær allar, ekki lúslesið þær eða hlustað, kom þar fram í sjálfu sér að hér væri verið að leggja fram falsfrumvarp, að frumvarpið væri viðurstyggilegt. Öllum þessum orðum um ofbeldi, ásökunum um lögbrot, stjórnarskrárbrot er auðvitað beint og óbeint beint til forsætisráðherra. Er óeðlilegt að forsætisráðherra svari fyrir sig? Er það svona óeðlilegt miðað við það sem á undan er gengið?