156. löggjafarþing — 69. fundur,  24. júní 2025.

orð forsætisráðherra um stjórnarandstöðuþingmenn.

[10:46]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Hér koma hv. þingmenn upp og saka hvern annan um mismunandi málflutning. Ég hvet nú landsmenn til að kynna sér umræðurnar, hvernig þær hafa verið hér undanfarna daga. Ég hvet fólk til að kynna sér líka málflutning Framsóknar því að við höfum komið málefnalega fram. Við höfum komið með lausnir á málinu, tillögur um það hvernig er hægt að leysa þennan hnút sem við erum í. Það er samt mikilvægt að koma því á framfæri hér að talan sem var upphaflega lögð fram í þessu frumvarpi hefur ekki breyst einu sinni, hún hefur ekki breyst tvisvar, hún hefur breyst þrisvar í málsmeðferðinni og það er ósköp eðlilegt að hér liggi ekki traust gagnvart þeim gögnum sem eru lögð fram. Það er ósköp eðlilegt. Svo er okkur sagt hér að við eigum bara að treysta tölunum sem eru lagðar fram en stjórnarmeirihlutinn kýs samt sem áður að treysta ekki þeim tölum sem er verið að tala fyrir hér og hafa verið reiknaðar út fram og til baka. Ég held að það sé afar mikilvægt (Forseti hringir.) að við höldum okkur við staðreyndir málsins, ræðum málefnalega um málið í stað þess að vera að skjóta á hvert annað hérna hægri vinstri. Tölum um staðreyndirnar, tölum um málið og reynum að ná (Forseti hringir.) einhvers konar niðurstöðu hér í þingsal. Og já, verklag í þessum þingsal er með þessum hætti og þangað til við breytum því þá er þetta staðan, því miður.