orð forsætisráðherra um stjórnarandstöðuþingmenn.
Virðulegur forseti. Ég vil taka það fram að við erum fullkomlega meðvituð um og höfum lesið öll þau gögn sem hafa verið lögð fram frá Deloitte. Þetta eru ný gögn sem er verið að tala um sem við höfum ekki séð. Einnig vil ég bara benda hv. þingmönnum á það að lesa aftur yfir nefndarálitið. Þar er heildartalan um veiðigjöldin 17,7 milljarðar. Hér er verið að fara með rangar tölur. Einnig voru breytingar gerðar á nefndarálitinu eftir að sveitarfélög og einstaklingar sendu inn umsagnir og tekið tillit til þess.