156. löggjafarþing — 69. fundur,  24. júní 2025.

fjölmiðlar.

256. mál
[10:51]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Guðmundur Ari Sigurjónsson) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjölmiðla, nr. 38/2011, stuðningur við einkarekna fjölmiðla.

Í frumvarpinu er lagt til að tekinn verði aftur upp í lög um fjölmiðla, nr. 38/2011, X. kafli B þar sem fjallað er um stuðning við einkarekna fjölmiðla. Ákvæði kaflans féllu úr gildi 1. janúar 2025 og er því ekkert stuðningskerfi í gildi samkvæmt núgildandi lögum. Vinna við endurskoðun kaflans stendur þó yfir um þessar mundir þar sem áætlað er að fara í heildarendurskoðun á þessum lögum. Gert er ráð fyrir því að nýtt frumvarp, þar sem lagt verður til að fest verði í sessi framtíðarfyrirkomulag stuðnings við einkarekna fjölmiðla, verði lagt fram á haustþingi árið 2025. Af þeim sökum er gildistími kaflans samkvæmt frumvarpi þessu takmarkaður við eitt ár.

Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Gögn málsins eru aðgengileg á vef Alþingis.

Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar árétta að nefndin fjallaði sérstaklega um stuðning við einkarekna fjölmiðla. Meiri hlutinn telur brýnt að frumvarpið verði að lögum svo að fjölmiðlar geti hlotið stuðning fyrir árið 2025. Þau sjónarmið komu fram fyrir nefndinni að afkoma sumra fjölmiðla væri beinlínis háð því. Í greinargerð með frumvarpinu kemur einnig fram að margt bendi til þess að brottfall styrkjakerfis geti haft veruleg og neikvæð áhrif á rekstrarumhverfi fjölmiðla, leitt til samdráttar og fækkunar á fjölmiðlamarkaði og þar með skaðað samkeppni og fjölbreytni. Til að koma í veg fyrir slíkar afleiðingar telur meiri hlutinn mikilvægt að frumvarpið verði samþykkt á yfirstandandi vorþingi.

Í þessu sambandi tekur meiri hlutinn undir mikilvægi fjölmiðla í lýðræðissamfélagi og þýðingu þess að hér starfi traustir, óháðir og stöðugir fjölmiðlar, sérstaklega á tímum mikillar upplýsingaóreiðu sem aukist hefur með auknum vinsældum samfélagsmiðla. Meiri hlutinn telur því áríðandi að styrkja fjölmiðla til þess að hér starfi fjölbreyttir og sjálfstæðir fjölmiðlar sem miðla ólíkum sjónarmiðum. Slíkur stuðningur er þýðingarmikill fyrir rekstur fjölmiðla, einkum minni fjölmiðla á landsbyggðinni, sem meiri hlutinn telur brýnt að viðhalda og efla.

Þá fjallaði nefndin um hámark rekstrarstuðnings í lögunum. Ein breyting er gerð frá því sem kveðið var á um í lögum nr. 53/2023 en þar var hámark stuðnings til hvers umsækjanda 25% af fjárveitingu til verkefnisins. Í frumvarpinu er lagt til að það verði lækkað úr 25% í 22%. Fyrir nefndinni kom fram óánægja með lækkunina þar sem hún myndi helst bitna á stærstu fjölmiðlafyrirtækjunum. Meiri hlutinn bendir hins vegar á að breytingunni er ætlað að stuðla að jafnari dreifingu stuðnings milli umsækjenda. Meiri hlutinn tekur undir umrætt markmið breytingarinnar og áréttar að um sé að ræða mikilvæga viðleitni til að styrkja rekstur staðbundinna fjölmiðla á landsbyggðinni sem tryggir fjölbreytni á fjölmiðlamarkaði og kemur í veg fyrir að svokallaðar fréttaeyðimerkur myndist víða um landið.

Meiri hlutinn telur hins vegar ljóst að rekstrarumhverfi fjölmiðla verði æ flóknara og brothættara, m.a. vegna þeirra tækniframfara og þróunar sem hefur átt sér stað. Sérstakt vandamál í þessum efnum er breytt hegðun auglýsenda á íslenskum auglýsingamarkaði en þeir kjósa í auknum mæli að eiga í viðskiptum við erlend stórfyrirtæki í stað innlendra fjölmiðla. Þetta hefur augljós áhrif á rekstur fjölmiðla innan lands. Telur meiri hlutinn mikilvægt að ráðist verði í heildarendurskoðun á ákvæðum kaflans með það að leiðarljósi að tryggja viðeigandi stuðning við innlenda fjölmiðla til framtíðar svo að hér geti starfað fjölbreyttir og sterkir fjölmiðlar. Telur meiri hlutinn að margt í umsögnum um frumvarpið sem sendar voru geti gagnast við þá endurskoðun og hvetur hæstv. menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og ráðuneyti hans til að kynna sér þær við undirbúning nýs frumvarps.

Meiri hlutinn leggur til eina breytingu sem er tæknilegs eðlis og er ekki ætlað að hafa efnisleg áhrif.

Að þessu sögðu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.

Undir nefndarálit meiri hlutans rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Víðir Reynisson, Grímur Grímsson, Heiða Ingimarsdóttir og Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir.

Frú forseti. Þetta mál hefur fengið töluverða umræðu, bæði í nefndinni og úti í samfélaginu. Það eru ekki allir á sama máli hvernig eigi að styrkja einkarekna fjölmiðla og jafnvel hvort það eigi að styrkja einkarekna fjölmiðla yfir höfuð. Við í meiri hluta nefndarinnar erum á þeirri skoðun að styrkir til einkarekinna fjölmiðla skipti miklu máli í lýðræðislegu samfélagi, sérstaklega í okkar litla málumhverfi í okkar litla landi í alþjóðlegum samanburði, að við tryggjum það að hér séu traustir og öflugir fjölmiðlar um allt land. Minni hlutinn telur rétt að stærstu einkareknu miðlar landsins fái áfram meira úr pottinum en sögurnar sem við höfum heyrt frá litlum fjölmiðlum víða um land síðustu ár eru þær að fjölmiðlastyrkurinn er einfaldlega það sem gerir gæfumuninn um það hvort möguleiki sé að halda úti héraðsfréttablöðum víða um land, hvort hægt sé að bæta við stöðugildum, miðla fleiri fréttum og halda rekstrinum réttu megin við núllið. Fjölmiðlastyrkirnir hafa gert sumum þessara miðla kleift að gera meira en að troða bara marvaðann og þessu er rétt að stuðla að, enda skiptir það miklu máli að ritstýrðir fjölmiðlar þrífist hringinn í kringum landið, að saga allra Íslendinga sé sögð úti um allt land, ekki bara á höfuðborgarsvæðinu.

Að þessu sögðu þá erum við hér einungis að ræða framlengingu á styrkjum til eins árs. Heildarendurskoðun stuðnings einkarekinna fjölmiðla verður til umfjöllunar á næsta þingvetri og þá stendur til að festa framtíðarfyrirkomulag stuðningsins í sessi