fjölmiðlar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það sem maður veltir fyrir sér er að nú er bara framlenging um eitt ár. Hér er verið að lækka stuðninginn til fjölmiðla hér á höfuðborgarsvæðinu. Auðvitað er mikilvægt að styðja við fjölmiðla á landsbyggðinni og við í Framsókn höfum nú verið að leggja fram fjármuni þess efnis á undanförnum árum. Hins vegar er það þannig að það er á kostnað fjölmiðla hér. Hv. þingmaður bendir á að þeir hafi fleiri tækifæri til að afla tekna og séu betur reknir. Hins vegar kom það skýrt fram í umsögnum um málið að þetta mun hafa veruleg áhrif á rekstur þessara fjölmiðla sem m.a. eru að sinna sinni rannsóknarskyldu og eru að fara dýpra í umræðuna að mörgu leyti sem er mikilvægt fyrir okkur í lýðræðissamfélagi.
Mig langar til að velta upp þeirri spurningu hvort það hefði ekki hreinlega verið skynsamlegra fyrir ríkisstjórnina að halda hlutunum óbreyttum, a.m.k. ef við vildum styðja við fjölmiðla á landsbyggðinni, frekar að stækka (Forseti hringir.) þá kökuna tímabundið þangað til heildarendurskoðunin á sér stað í stað þess að fara þessa leið þar sem er verið að skerða kökuna á einum stað til að stækka hana á hinum. Væri ekki einfaldlega betra (Forseti hringir.) að hækka upphæðina og halda þessu tiltölulega óbreyttu?