fjölmiðlar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Guðmundi Ara Sigurjónssyni fyrir sína umfjöllun um þetta mál þó að málið sé handónýtt og stórfurðulegt í marga staði, ef ekki alla. Hér er verið að leggja upp með að það þurfi að fara og styðja landsbyggðarmiðla á grundvelli ákveðinnar hugsjónar um að umfjöllun eigi að vera um allt land og þar fram eftir götum þótt upphaflegt markmið fjölmiðlastyrkjanna hafi verið miklu sértækara í raun og veru gagnvart lýðræðishlutverki stöndugra fjölmiðla til að veita stjórnvöldum aðhald o.s.frv. Það hefur margvíslegur rökstuðningur verið færður fram í því efni.
Nú er þetta styrkjakerfi eitthvað sem mjög margir eru sammála um að sé mjög óheilbrigt ástand, ekki síst í ljósi þess hvernig stjórnarliðar þessarar ríkisstjórnar hafa talað með ítrekuðum hætti. Þá svona afhjúpast þetta sem allir þó vissu. Við höfum lagt til í Miðflokknum t.d. að fara frekar þá leið — vegna þess að við könnumst alveg við markaðsbrestinn, við ætlum ekki að neita að horfast í augu við markaðsbrestinn — að leyfa borgurum þessa lands, almenningi, sem er nú oft vísað til þegar talað er um almannaútvarpið svonefnda, Ríkisútvarpið, sem vex eins og púkinn á fjósbitanum á meðan aðrir berjast í bökkum, (Forseti hringir.) að ráðstafa þeim útvarpsstyrk sjálfir. Hver er skoðun hv. þingmanns á þessari leið, að leyfa fólki að ráðstafa þeim útvarpsstyrk sjálft til að laga þennan markað?