156. löggjafarþing — 69. fundur,  24. júní 2025.

fjölmiðlar.

256. mál
[11:07]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Guðmundi Árna Sigurjónssyni fyrir svarið. Lýðræðishlutverk Ríkisútvarpsins er æðiflókið á þessum síðustu og verstu tímum. Það er nú vísað til þess í umfjöllun um þetta frumvarp að það sé mikilvægt að vinna gegn svonefndri upplýsingaóreiðu, sem er nú sjaldnast skilgreind. Það er vísað í samfélagsmiðla á því sviði, sem ég bendi nú á og hefur verið mín skoðun, sem hef nú starfað á þessu sviði, að á sama tíma og samfélagsmiðlarnir færa okkur sannarlega margvíslegar upplýsingar þá er ákveðin frelsisbylting í því falin að fólk geti tjáð sig og unnið eftir óhefðbundnum leiðum sem eru þá ekki þessara hefðbundnu fjölmiðla, ekki ríkisfjölmiðla. Ríkisfjölmiðillinn er náttúrlega á endanum alltaf fjármagnaður af ríkisvaldinu sem hefur einhverja hagsmuni. Það er þessi undarlega tilviljun að fólk endi á einhvern hátt leynt eða ljóst á að starfa ekki kannski eftir nákvæmlega þessum lýðræðislegu leiðum sem hv. þingmaður talar um heldur er Ríkisútvarpið að mínu mati mun frekar á ýmsum sviðum, hvort sem það er í dagskrárgerð eða kannski ákveðnum hluta fréttaflutningsins, tiltölulega pólitískt í sínum störfum og hefur svona ákveðna sýn á hlutina sem er heldur í ætt við sýn auðvitað bara tiltekinna stjórnmálaafla í heiminum eða hérna á Íslandi. (Forseti hringir.) Í þessu margumtalaða lýðræðishlutverki, finnst hv. þingmanni (Forseti hringir.) að Ríkisútvarpið gæti hlutleysis algjörlega?

(Forseti (ÞSv): Enn skal það tekið fram að ræðutími þegar fjórir andsvarendur eiga í hlut er ein mínúta í hverri umferð.)