156. löggjafarþing — 69. fundur,  24. júní 2025.

fjölmiðlar.

256. mál
[11:09]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Guðmundur Ari Sigurjónsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Ég tel afar mikilvægt að það komi skýrt fram hér í ræðustól Alþingis í þessari umræðu að Ríkisútvarpið er sjálfstæður miðill og þó að það hljóti þessa nefskatta frá ríkinu — og það er kannski einmitt ein af rökunum fyrir því af hverju fjármögnun Ríkisútvarpsins er með þeim hætti sem hún er að það er bara bundið í fjárlög hvernig það þróast. Við ákveðum ekki í fjárlögum hvers árs hversu mikið Ríkisútvarpið á að fá, því er bara tryggður ákveðinn rekstrargrunnur og það á að starfa sjálfstætt og óháð að því að segja fréttir. Enginn aðili í samfélaginu er hafinn yfir gagnrýni en ég held að svona kerfislega skipti máli að því sé haldið til haga að Ríkisútvarpið sé ekki með þeim hætti, eins og stundum er látið í ljós, einhvern veginn handbendi stjórnvalda. Svo er ekki.

Það er mikilvægt að við tryggjum þetta alltaf og gætum að þessu lýðræðishlutverki, við eigum alltaf að vera vakandi fyrir því og vera óhrædd við að taka þessa umræðu. Pólitísk umræða hefur kannski svolítið breyst. Þetta er ekki flokkspólitísk umræða sem hér er verið að vísa til heldur kannski menningarleg, sem er svolítið nýnæmi, sem við þurfum að taka afstöðu til.