fjölmiðlar.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir sitt andsvar. Það er rétt að það er innbyggður stuðningur við minni fjölmiðla, landsbyggðarfjölmiðla, í frumvarpinu. Ég tel að margt í þessu frumvarpi sé afar gott og þess vegna er ég líka hér að mæla fyrir því. Þetta var þó skref þar sem við töldum að hægt væri að ganga enn þá lengra og það væri nauðsynlegt til að tryggja það að þessir minni fjölmiðlar úti um allt land færu einfaldlega ekki á hausinn, sem myndi stuðla að þessum fjölmiðlaeyðimörkum eins og kemur fram í nefndaráliti og frumvarpi. Það var í rauninni það hagsmunamat sem var að baki því að þessi breytingartillaga kæmi fram. Þannig að það er rétt að það er innbyggður stuðningur. Það er rétt að verið er að ganga lengra til að styðja betur við fjölmiðla úti um allt land, þessa staðbundnu fjölmiðla, og ég tel það jákvætt.