fjölmiðlar.
Virðulegur forseti. Hér segir hv. þingmaður að það hafi verið ákveðið að ganga lengra en gert var við síðustu ákvörðun til að koma í veg fyrir gjaldþrot héraðsfréttamiðla. En hver er staðan með stóru miðlana sem sinna landinu öllu? Hún er hræðileg. Því miður búum við hér á Íslandi við ofboðslega veika fjölmiðla og það er stórhættulegt fyrir lýðræðið okkar. Þannig að ég segi að þetta er ekki fullkomin lausn sem við erum með hér. En mikið ofboðslega held ég að mikið væri unnið ef við gætum sameinast um eitthvert framtíðarfyrirkomulag um það með hvaða hætti við ætlum að styðja við fjölmiðla á Íslandi. Ég skil ekki, virðulegur forseti, að meiri hlutinn hafi þó ekki séð útrétta hönd í því að framlengja bara ákvæðið eins og það var í lögunum í staðinn fyrir að ráðast í þessa breytingu sem er ofan á það sem við gerðum síðast. Öll erum við sammála um mikilvægi héraðsfréttamiðlanna en nú stöndum við frammi fyrir ofboðslega hættulegu ástandi með fjölmiðla í landinu sem sinna m.a. okkur hér í þingsal (Forseti hringir.) og við skulum líka muna hversu hættuleg orð (Forseti hringir.) hafa fallið meðal stjórnarþingmanna um einmitt fjölmiðla sem eru að sinna Alþingi Íslendinga.