fjölmiðlar.
Virðulegi forseti Ég vil byrja á því að þakka formanni nefndar og framsögumanni á málinu fyrir ágætisvinnu í nefnd í þessu máli. Hins vegar er ég á minnihlutaáliti hvað þetta varðar og það sem ég geri athugasemdir við er að fyrst það er verið að framlengja styrki til fjölmiðla, af hverju er þá kerfinu breytt þannig að það eru einungis tveir fjölmiðlar sem eru teknir út fyrir sviga og fá þá minni framlög? Það á að fara í heildarendurskoðun á þessum lögum og ráðherra hefur boðað það, en af hverju framlengjum við þá ekki ákvæðin óbreytt? Í minnihlutaálitinu er gert ráð fyrir því að það verði 25%, óbreytt, í stað 22%. Í þessu sambandi verð ég að segja að ég hef áhyggjur af sjálfstæði fjölmiðla hvað þetta varðar.