fjölmiðlar.
Virðulegur forseti. Ég vil taka undir orð hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur um mikilvægi þess að við stöndum vörð um sjálfstæði fjölmiðla á Íslandi. Það er gríðarlega mikilvægt að svo sé. Það er líka mikilvægt fyrir þau sem eru að fylgjast með þessari umræðu að það sé meðvitund um að hér erum við að fjalla um formstyrki en ekki efnisstyrki. Forsendur þess að fá styrk úr þessum potti sem hér um ræðir er að uppfylla ákveðin formskilyrði. Þar skiptir engu máli hver efnistök fjölmiðilsins eru eða hver pólitísk afstaða fjölmiðilsins er. Þetta eru formstyrkir en ekki efnisstyrkir. Það sem er bagalegt er að við séum í þessum árlegu framlengingum á þessu kerfi í staðinn fyrir að við séum búin að klára þessa heildarendurskoðun, búin að marka framtíðarsýn og setja skýrt og gegnsætt kerfi til lengri tíma. Það er það markmið sem ráðherra hefur boðað strax í haust að verði farið í til að eyða öllum vafa um það og bara þessari vinnu þingsins, að vera endalaust að framlengja þessum styrkjum. Við trúum því að það sé mikilvægt að við styrkjum einkarekna fjölmiðla úti um allt land og það þarf að vera fyrirsjáanleiki og gagnsæi í því hvernig þeim styrkjum er háttað.