umræða um veiðigjöld.
Frú forseti. Í gær steig fram á ritvöllinn sitjandi hæstv. forsætisráðherra, Inga Sæland, þar sem hún fór mikinn gegn málflutningi okkar hér í stjórnarandstöðunni og áhyggjum þeim sem við höfum að því frumvarpi sem hér liggur fyrir Alþingi. Hún segir, með leyfi forseta, að með frumvarpinu muni sveitarfélögin fá hundruð milljóna í auknar útsvarsgreiðslur. Til upplýsingar þá segir í frumvarpinu sjálfu, í kafla 5.1.3., að ekki verði lagðar til breytingar sem hafa bein fjárhagsleg áhrif á tekjustofna sveitarfélaga, sem til upplýsingar útsvarsgreiðslur vissulega eru.
Ég vil fara þess góðfúslega á leit við forseta að hlutast til um það að á einhverjum tímapunkti sé komið nóg af því að fyrirsvarsmenn ríkisstjórnarinnar og hv. stjórnarliðar augljóslega viti ekki um hvað málið snýst á sama tíma og það er gert lítið úr málflutningi þeirra sem vita um hvað þetta mál snýst. Ég held að það væri rétt að að lágmarki hæstv. ráðherrar, forsvarsmenn þessarar ríkisstjórnar, kynni sér um hvað málið er og ég tala nú ekki um áður en þeim sem eru að lýsa yfir áhyggjum sínum hér er brigslað um falsfréttir vegna málflutnings þeirra um málið.