umræða um veiðigjöld.
Herra forseti. Ég vil taka undir orð hv. þm. Hildar Sverrisdóttur með fréttamiðil hæstv. ráðherra í þessari ríkisstjórn sem kemur fram á ritvöllinn og talar um mörg hundruð milljóna króna tekjur í aukið útsvar inn í sveitarfélögin. Ég vona að fólk átti sig á því hvað þetta þýðir. Hér er einn af forvígismönnum ríkisstjórnarinnar að tala um mörg hundruð milljóna króna tekjur í aukið útsvar í frumvarpi sem við erum búin að ræða hér töluvert lengi og minni hlutinn er að reyna að verjast þessu rugli sem er í gangi, frú forseti. Það verður að laga þetta. Við getum ekki boðið þjóðinni upp á að fólk sem er hæstv. ráðherrar í ríkisstjórn tali svona. Þetta er bara birtingarmynd af þeim stað sem þetta frumvarp er á.