umræða um veiðigjöld.
Frú forseti. Nú höfum við staðið hér í þingsal undanfarna daga og oft langt fram á nótt til að ræða þetta frumvarp hæstv. ríkisstjórnar og benda á galla í því og benda á að það sé sífellt að taka breytingum og byggi ekki á réttum forsendum. Nú hefur hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra tjáð sig um málið á samfélagsmiðlum og það er alveg augljóst að hún hefur ekki lesið það kirfilega eða kynnt sér það eða þá a.m.k. ekki skilið það. Það er eitt. Það er annað að setja það síðan áfram á samfélagsmiðla. Ég held að það sé afar mikilvægt varðandi upplýsingar til almennings að við vöndum okkur og við skiljum það sem við segjum því við vitum það öll hér að orðum fylgja ábyrgð og skrifuðum orðum fylgja líka ábyrgð.