156. löggjafarþing — 70. fundur,  25. júní 2025.

umræða um veiðigjöld.

[10:36]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Frú forseti. Það kemur kannski ekki á óvart, það er bara svona eftir taktinum síðustu daga, að hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar eru tilbúnir að ráðast hér að fjarstöddum hæstv. ráðherrum. (Gripið fram í.) Ég vil vekja athygli á því að það er ekki fjarri lagi að þetta frumvarp geti leitt af sér góðan ávinning fyrir sveitarfélögin. Það er alla vega mat eins umsagnaraðilans, Félags vélstjóra og málmtæknimanna, sem segir einmitt að þetta frumvarp sé fyrsti liðurinn í því sað afli verði verðlagður rétt. Þá voru þeir einkum með í huga verð á uppsjávarafla og bentu á að verðið sem væri gert upp á við þá væri 30, 40% lægra heldur en það sem norsk skip fengu við að afla landa á Íslandi úr sömu torfunni. Því er ekki svo fjarri lagi að þetta geti orðið fyrsti liðurinn í því, (Forseti hringir.) þetta frumvarp sem við höfum hér fjallað um lengi, langa daga og fram á nætur, að sveitarfélögin fái góðan ávinning í hækkuðum hafnargjöldum.