umræða um veiðigjöld.
Frú forseti. Já, maður veitir ekki hvar maður á að byrja frá því að ég bað fyrst um orðið. En það er rétt, ég tek undir orð hv. þingflokksformanns Viðreisnar, Sigmars Guðmundssonar, um að orðum fylgi ábyrgð og sérstaklega þegar viðkomandi situr í stöðu starfandi hæstv. forsætisráðherra. Verð ég að segja að það er í besta falli skrýtið að hv. þingflokksformaður Flokks fólksins segi að við séum hér að ráðast að fjarverandi ráðherrum. Ég veit ekki betur en að hér sé þingfundur í gangi og viðkomandi hæstv. ráðherra getur þá bara mætt á fundinn. En orðum fylgja ábyrgð og það er ekki hægt að væna okkur hér um að við séum að upplifa orð hæstv. starfandi forsætisráðherra vitlaust vegna þess að seinna var þessi færsla leiðrétt, enn önnur leiðréttingin í þessu leiðréttingarfrumvarpi, þar sem var búið að taka út þetta með útsvarið. Þannig að starfandi hæstv. forsætisráðherra sá að sér en sá ekki nógu mikið að sér til að gefa út leiðréttingu eftir að hundruð einstaklinga höfðu sett „like“ (Forseti hringir.) við þessa færslu og athugasemd hafði birst frá hv. þingflokksformanni Flokks fólksins, Sigurjóni Þórðarsyni.