umræða um veiðigjöld.
Virðulegur forseti. Ég kem hér upp undir fundarstjórn forseta til að þakka forseta fyrir að hafa hlutast til um að haldinn var fundur í atvinnuveganefnd fyrr í dag þar sem fulltrúar Skattsins og atvinnuvegaráðuneytisins komu til fundar og svöruðu þar skilmerkilega góðum spurningum. Þar kom alveg skýrt fram að frá 12. júní hafa rétt gögn legið fyrir í málinu, sem sagt áður en málið er tekið út úr nefnd, áður en öll nefndarálit eru gefin út, og því eru þær tölur sem birtast í nefndaráliti meiri hluta réttar. Allt tal um að önnur gögn berist daglega og að tölurnar séu á reiki er einfaldlega rangt. Það hefur verið staðfest núna á þessum fundi. Það er gott. Þá getum við farið að tala um raunverulega afstöðu þingmanna til þess að leiðrétta veiðigjaldið og þær tölur sem fram koma í nefndaráliti meiri hlutans en þurfum ekki að dvelja lengur í einhvers konar upplýsingaóreiðuumræðu, hvaðan sem það stafar. Við erum með rétt gögn á borðinu. Hver er afstaða þingheims til þess að þjóðin fái réttlátan hlut fyrir veiðar í kringum landið?