156. löggjafarþing — 70. fundur,  25. júní 2025.

umræða um veiðigjöld.

[10:49]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Ég kem upp til að reyna aðeins að varpa ljósi á málið að því sem snýr að minni hluta atvinnuveganefndar. Við skulum hafa í huga að í frumvarpinu er lagt af stað með reiknigrunn 455 kr. á kílóið sem gerir, eftir að við reiknuðum það út samkvæmt töflu 8 í frumvarpinu, 64 kr. Það er grunngjaldið, við skulum hafa það á hreinu. Það er lagt af stað með þessa tölu í upphafi frumvarps. Síðan eru gerðar leiðréttingar og grunnurinn er 435 kr. sem gerir 58 kr., sem eru gögnin í nefndaráliti meiri hlutans. Út frá því getum við unnið núna. Það fengum við staðfest í morgun á fundi atvinnuveganefndar með Skattinum og þar af leiðandi getum við núna farið að ræða efnishluta málsins af fullum þunga er varðar veiðigjöld og þurfum ekki að vera að velta því lengur fyrir okkur hvaða tölur við eigum að vinna með. (Forseti hringir.) Bara svo það sé sagt þá liggur hundurinn grafinn í því að við lögðum af stað með tölur sem voru ekki réttar.