umræða um veiðigjöld.
Frú forseti. Já, forsætisráðherra fór í Kastljóssviðtal á dögunum og segir stjórnarandstöðuna tala í falsfréttastíl, hún sé með hræðsluáróður, hræri í pottum, skapi ótta og óvissu. Starfandi forsætisráðherra bætir síðan í í Facebook-færslu í gær, sem síðar er leiðrétt að einhverju leyti. Það er nú bara þannig, eins og hv. þingflokksformaður Viðreisnar sagði áðan, að orðum fylgja ábyrgð og það er líka þannig að rétt skal vera rétt. Hann segir líka hér í pontu að minni hlutinn sé rangstæður þegar verið er að meta áhrif á sveitarfélög, sagði eitthvað á þessa leið. Erum við í alvöru komin á þann stað að það sé verið að væna 26 sjávarútvegssveitarfélög sem hafa sent inn alvarlegar umsagnir um þetta frumvarp, erum við í alvöru komin á þann stað að það er verið að gera lítið úr þeim umsögnum hér úr þessari pontu? (Forseti hringir.) Hver er rangstæður? Hver er rangstæður? Ég held að það sé bara kominn tími á að við lækkum spennustigið (Forseti hringir.) og menn reyni að finna eitthvað vænlegt út úr þessu öllu saman.