umræða um veiðigjöld.
Virðulegur forseti. Eins og hefur komið fram var staðfest á fundi hv. atvinnuveganefndar í morgun að tölur í nefndaráliti meiri hlutans eru réttar og hafa verið það frá upphafi, (Gripið fram í: Ha? Nei.) (Gripið fram í.) unnið einnig úr gögnum frá ráðuneytinu. (Gripið fram í.) — nefndarálit meiri hlutans. Tölur í nefndaráliti meiri hlutans eru réttar, jú. Þetta er unnið úr gögnum frá ráðuneytinu sem eru birt án fyrirvara. Ekki er hægt að segja það sama um önnur gögn sem hafa verið lögð fram. Við höldum áfram þessari vinnu og ég geri mér miklar vonir um að við getum unnið og verið heiðarleg, haft heiðarlega og góða vinnu þó svo að við séum ekki alltaf sammála. Við erum kosin á þing á lýðræðislegan hátt og við skuldum fólkinu í landinu að haga okkar störfum þannig.