umræða um veiðigjöld.
Frú forseti. Mig langar að taka undir með hv. þingmönnum atvinnuveganefndar og þakka fyrir þann fund sem við áttum hér í morgun þar sem dregið var úr öllum vafa þegar kemur að því að við í meiri hluta atvinnuveganefndar höfum allan tímann verið að styðjast við rétt gögn þegar kemur að vinnslu nefndarálits okkar og þeim breytingartillögum sem fram koma og eru núna hér í umræðu. Mig langar líka undirstrika það að Skatturinn sendi gögn til nefndarinnar, ég er komin í smá rugl með tímalínuna en ég held að það hafi verið 10. eða 11. júní …(Gripið fram í.) — 12. júní, takk fyrir. Þann 12. júní sendir Skatturinn nákvæmlega sömu gögn þannig að þessi gögn hafa legið fyrir síðan 12. júní. Það er hins vegar val minni hlutans að tortryggja þau og biðja um fund til að staðfesta eitthvað sem við treystum. Við treystum okkar stofnunum fyrir því að leiða fram rétt gögn og réttar tölur. Ég vil bara undirstrika það að þessi gögn hafi legið fyrir síðan 12. júní, ekki bara í dag.