156. löggjafarþing — 70. fundur,  25. júní 2025.

umræða um veiðigjöld.

[10:57]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Frú forseti. Varðandi þennan fund sem fór fram hér í morgun að áeggjan hæstv. forseta þá er það alveg ljóst að hann var ekki að upplýsa neitt sem lá ekki ljóst fyrir. Það er einfaldlega búið að liggja fyrir, eins og hv. þm. María Rut Kristinsdóttir benti hér á, alveg frá 12. júní að þessar upplýsingar væru réttar og það var auglýst sérstaklega á síðu Stjórnarráðsins. En ef hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar taka ekki mark á Stjórnarráðinu, hlaupa frekar eftir einhverjum yfirlýsingum eða útreikningum frá hagsmunasamtökum sem augljóslega er að stunda upplýsingaóreiðu, sem er alvarlegt, þá held ég að þessi atburðarás ætti að verða hv. þingmönnum stjórnarandstöðunnar ákveðin lexía í því að treysta því sem kemur frá stjórnvöldum og vera ekki að ýta hérna undir upplýsingaóreiðu. Ég segi bara: (Forseti hringir.) Mér finnst þetta vera vinnubrögð sem eru þeim til vansa í stjórnarandstöðunni.