156. löggjafarþing — 70. fundur,  25. júní 2025.

umræða um veiðigjöld.

[11:01]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Ég, eins og hv. þm. Ólafur Adolfsson, fór réttum megin fram úr rúminu í morgun. Leið bara vel þegar ég kom hingað. Mér þykir orðið svolítið sérstakt hvernig menn eru að misnota það sem heitir fundarstjórn forseta. Við erum að ræða tvö mál á þinginu í dag, annað heitir veiðigjöld. Ef mér skjátlast ekki eru tíu manns á mælendaskrá og ef mér skjátlast ekki þá verður þetta bara eins og þeytivinda, eins og þetta er svolítið búið að vera, og þeir komas aftur á mælendaskrá. Ég get því ekki annað séð en að við munum geta haldið áfram að ræða veiðigjöldin, ekki undir fundarstjórn forseta heldur undir liðnum veiðigjöld. Hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson mætir hér í pontu og ætlar á einni mínútu að skýra út fyrir okkur um hvað þetta fjallar, okkur sem ekkert vitum, en hann er að fara í sína 14. ræðu í dag. Ég hlakka til að hlusta á hann þegar hann hefur ekkert að segja um þetta. Hann er búinn að skýra þetta út fyrir okkur á einni mínútu, en um hvað er hann búinn að vera að tala í 13 ræðum?