156. löggjafarþing — 70. fundur,  25. júní 2025.

umræða um veiðigjöld.

[11:02]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Flf):

Virðulegur forseti. Ég var mjög ánægð með þennan fund í morgun með Skattinum og þá loksins skildi minni hlutinn þær tölur sem voru lagðar fram 12. júní og allir áttu að hafa aðgengi að. Hér hefur röngum tölum verið haldið fram frá þeim tíma og mér finnst það auðvitað mjög undarlegt en við ættum öll að vera sammála um það að nú getum við byrjað að tala út frá réttum tölum, eða minni hlutinn. Við höfum gert það, meiri hlutinn, talað út frá því nefndaráliti sem er hárrétt að sögn Skattsins og verið sammála um það. Það er líka mjög ánægjulegt að það kom fram á þessum fundi hvað þessi mikli afsláttur hefur jákvæð áhrif gagnvart fyrirtækjum í landinu, litlum og meðalstórum, og sveitarfélögum og sá ótti sem hefur verið sáð, bæði gagnvart sveitarfélögum og fyrirtækjum, að það sé ekki þessi innstæða fyrir honum. Mér finnst að minni hlutinn ætti að halda því á lofti í þeim ræðum sem eru ófluttar af þeirra hálfu, en þessu ætti nú að fara að ljúka með mikilli ánægju eins og hv. þm. Ólafur Adolfsson talar hér um.