156. löggjafarþing — 70. fundur,  25. júní 2025.

umræða um veiðigjöld.

[11:07]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Svo það sé alveg á hreinu þá hafa gögn jú legið fyrir og við höfum verið að glöggva okkur á þeim. En það að við þurftum að bíða þangað til í morgun eftir því að fá staðfestingu á því hvers vegna þessi talnaruglingur hefur átt sér stað — það er gott að því sé nú lokið. Fyrir vin minn, hv. þm. Guðbrand Einarsson, vonast ég til þess að hann bíði spenntur eftir minni 14. ræðu. En ég vil taka það fram að ég hef stuðst við nefndarálitið, útreikning nefndarálits, í öllum mínum ræðum í þessari umræðu, svo það sé sagt. Ég hef stuðst við 58 kr. allan tímann. En þessar 64 kr., hv. þm. Guðbrandur Einarsson, ég skal bara útskýra þær mjög vel í ræðu á eftir.